10.2.2007 | 10:33
Ársþing KSÍ hafið
Þá er ekki meira sem við getum gert, enda ekki með seturétt á ársþingi KSÍ - og það sama gildir um flesta af þeim 300 stuðningsmönnum sem hafa skráð sig hér á síðunni.
Við viljum þó þakka fyrir frábær viðbrögð við framboðinu og vonum að sá mikli stuðningur sem almenningur hefur veitt Höllu hafi haft áhrif á þá sem með atkvæðin fara í dag. Í Íþróttablaði Morgunblaðsins í dag birtist þessi stuðningsyfirlýsing:
Við munum fylgjast með ársþinginu hér á síðunni og birta það sem markvert þykir eins fljótt og kostur gefst.
Bestu kveðjur,
Stuðningsmenn!