Kæru félagar

Sem kunnugt er hefur Halla Gunnarsdóttir, blaðamaður, ákveðið að gefa kost á sér til embættis formanns KSÍ. Næstu vikur munu því verða talsvert annasamar í að kynna málefni Höllu fyrir sem flestum innan knattspyrnuhreyfingarinnar. Við óskum eftir þínum stuðningi við kosningabaráttuna. Ef þú hefur tíma til aflögu sendu okkur endilega póst á Kára, karigy@hi.is og við verðum í sambandi.

Opnaður hefur verið reikningur til að standa straum af kostnaði við kosningabaráttuna, s.s. ferðalög og símreikning. Reikningsnr. er: 0323-13-700581, kt. 0801812999.

Með von um góð viðbrögð.

Bestu kveðjur

Stuðningsmenn Höllu Gunnars


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrafn Jökulsson

Það var gæfudagur í íslensku skáklífi þegar Guðfríður Lilja Grétarsdóttir var kjörin forseti Skáksambands Íslands: Ung, djörf og áræðin, knúin áfram til að láta gott af sér leiða.

Mér hugnast áherslu Höllu Gunnarsdóttur afar vel: að stórefla starf meðal barna og ungmenna.

KSÍ hefur verið stjórnað af einlitum karlahópi í áratugi, sem einblínir á árangur karlalandsliðsins. Það landslið er nú í kringum 100. sæti á heimslistanum.

Kannski væri staðan öðruvísi ef karlaklúbburinn í KSÍ hefði lagt mestan metnað í æskulýðsstarf -- þá ættum við bæði blómlegt fótboltalíf og frambærilegt landslið.

Baráttukveðjur -- fram til sigurs!

Hrafn Jökulsson, 23.1.2007 kl. 13:10

2 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Ertu nokkuð að grínast?

Við getum fengið Geir sem hefur yfirburðaþekkingu á málefnum KSÍ og mér bara finnst enginn annar koma til greina.

Heimir Lárusson Fjeldsted, 23.1.2007 kl. 15:01

3 Smámynd: Sveinn Ingi Lýðsson

Glæsilegt hjá þér Halla.  Margt gott má segja um stjórnun KSÍ undanfarin ár undir forustu Eggert Magnússonar.  En nú er komin tími á ferska vinda.  Og Heimir.  Geir hefur örugglega mikla þekkingu á sínu sviði.  Það efast enginn um.  Í honum vitum við hvað við höfum.  Skiptum um forustu.  Áfram Halla!

Sveinn Ingi Lýðsson, 23.1.2007 kl. 16:19

4 Smámynd: Ólafur fannberg

stend með Höllu

Ólafur fannberg, 23.1.2007 kl. 16:22

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband