24.1.2007 | 11:04
Ekkert spaug
Ég hef orðið vör við að fólk virðist ennþá halda að ég sé að grínast með framboði mínu til formanns KSÍ. Ég skil reyndar ekki af hverju fólk heldur það. Ég er svo sem alveg þekkt fyrir að hafa gaman að góðu gríni en ég myndi aldrei eyða allri þessari orku minni og annarra í lélegan brandara!
Athugasemdir
Ætli Baggalútur eigi ekki sökina?
Ólafur Örn Nielsen, 24.1.2007 kl. 13:43
Haha, jú það gæti verið. Hann var fyndinn, miklu fyndnari en meint grín mitt.
Halla Gunnarsdóttir, 24.1.2007 kl. 15:54